Byggingareðlisfræði

Byggingareðlisfræði og byggingatækni
Við hjá VERKVIST teljum að byggingareðlisfræði sé lykillinn að sjálfbærum, heilnæmum og vistvænum byggingum. Með samþættingu sjálfbærni og byggingareðlisfræði er stefnt að því að byggja húsnæði sem er ekki aðeins öruggt og endingargott, heldur einnig í sátt við náttúru, heilsu og vellíðan.
Byggingareðlisfræði fjallar um samspil raka, hita, lofts og byggingarefna í byggingarhlutum og hvernig það samspil hefur áhrif á endingu, orkunotkun og heilnæmi bygginga.
Hvenær er greining gagnleg
Byggingareðlisfræðileg greining er meðal annars gagnleg þegar:
-
Hanna á nýbyggingu eða velja byggingarefni fyrir veggi, þök eða gólf
-
Meta þarf áhrif einangrunar eða breytinga á loftræsingu á rakaástand byggingarhluta
-
Grunur er um rakaþéttingu, fúa eða mygluvöxt í byggingarhluta
-
Endurbæta á eldra húsnæði og meta þarf áhrif breytinga á upprunalega byggingu
-
Uppfylla þarf kröfur vistvottana á borð við BREEAM, Svaninn eða WELL
-
Stefnt er að aukinni orkunýtingu án þess að auka rakaáhættu


WUFI hermun
VERKVIST notar meðal annars WUFI hermihugbúnað í sinni vinnu. Greiningar eða hermun með WUFI gefa upplýsingar um raka- og hitaflutning í gegnum byggingarhluta en það gagnast við val á byggingarefnum, meðal annars til að forðast byggingargalla og stuðla að orkusparnaði.
Hermun er framkvæmd með íslenskum veðurgögnum eitt ár í senn og niðurstöður notaðar til að meta hvernig tiltekin uppbygging bregst við íslenskum aðstæðum yfir heilt ár.
Myglu- og fúaáhætta
Út frá niðurstöðum raka- og hitaflutningshermunar er hægt að spá fyrir um líkur á myglu í ákveðinni byggingaruppbyggingu. Þannig er hægt að meta hættuna á rakaþéttingu og mygluvexti miðað við tiltekna uppbyggingu áður en byggt er, eða við mat á núverandi ástandi byggingarhluta.
Gæði bygginga og ending
Hvar á hún að grípa inn?
Því fyrr sem hún kemur að verkefni, því ódýrara er að bregðast við: á hönnunarstigi nýbygginga (áður en efnisval í útveggi, þök og gólf er endanlega ákveðið), við val á einangrun eða breytingar á loftræsikerfi, við endurbætur og viðhald eldra húsnæðis, þegar grunur vaknar um rakavandamál, í tengslum við vottunarferli (BREEAM, Svanurinn, WELL), og við gerð rakavarnaráætlana/sem rakavarnarfulltrúi.
Verðmæti fyrir viðskiptavininn
Færri kostnaðarmikil mistök eins og rakaskemmdir sem koma í ljós eftir að byggt er kosta margfalt meira en greining fyrirfram, lengri líftími bygginga, ákvarðanir byggðar á gögnum frekar en tilfinningu, öruggari orkusparandi lausnir, skjölun sem nýtist beint í vottunarferli, og hugarró um að byggingin þoli íslenskt veðurfar.

Heiðdís Tinna Guðmundsd.
Byggingartæknifræðingur
Innivist & byggingatækni
Kristján Ingi Þórðarson
Byggingartæknifræðingur
Innivist & byggingatækni







_edited.jpg)