
Verkfræðingur

Björg Bjarnadóttir
Fagleiðtogi umhverfisvottun
Umhverfi & sjálfbærni
Sjálfbærniverkfræðingur / MPhil.
-
Umhverfisvottun
-
Verkefnastjórn
-
Kolefnisspor
-
Hringrásarhagkerfi
-
Þróun og nýsköpun
-
Loftslagsbreytingar
Um Björgu
Björg er sjálfbærniverkfræðingur frá Cambridge-háskóla í Englandi og hefur víðtæka
reynslu í sjálfbærniráðgjöf, verkefnastjórnun og gagnagreiningu.
Áður en hún hóf störf hjá VERKVIST, vann hún sem sjálfbærniráðgjafi og verkefnastjóri í
loftslagsteymi 3keel í Oxford. Þar vann hún meðal annars með alþjóðlegum fyrirtækjum
að reikna og greina kolefnislosun þeirra samkvæmt Greenhouse Gas Protocol staðlinum
og veitti þeim innsýn í helstu tækifæri til að draga úr losun. Í því starfi öðlaðist hún meðal
annars góða reynslu í gagnagreiningu, verkefnastjórnun, uppbyggingu
sterkra viðskiptatengsla við ólíka hagaðila og miðlun flókinna upplýsinga á skýran og
faglegan hátt.
Í meistaranámi sínu lagði Björg áherslu á sjálfbærni í byggingariðnaði og í orkugeiranum.
Í verkefnum sínum lagði hún m.a. til aðgerðir til að draga úr innbyggðu kolefni (e. upfront
carbon) í nýbyggingum, skoðaði hönnunarforsendur fyrir byggingareiningar sem eru
hannaðar m.t.t. niðurtöku og endurnotkunar, framkvæmdi áhættugreiningu fyrir
raforkuflutningskerfi Íslands og rýndi í sviðmyndir Bretlands í orkumálum m.t.t. áherslna
þeirra í loftslagsmálum.
Áður en hún hóf meistaranám vann hún í sjálfbærniverkefnum hjá VSÓ Ráðgjöf. Þar fékk
hún innsýn í BREEAM, greindi tækifæri og hindranir við innleiðingu
hringrásarhagkerfisins í íslenskum byggingariðnaði, var meðhöfundur sjálfbærniskýrslu
fyrirtækisins og leiddi styrkumsóknina Hringrásarhúsið sem fékk úthlutað kr. 20
milljónum úr sjóði Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að efla hringrásarhagkerfið
árið 2021.
Hjá VERKVIST leiðir Björg faglega umsjón og uppbyggingu umhverfisvottana og kemur
með ómetanlega reynslu og sýn inn í verkefni VERKVISTAR
Starfsreynsla
2026-
VERKVIST
Fagleiðtogi umhverfisvottun
20203-2026
3keel, sjálfbærniráðgjafi
2020-2021
VSÓ Ráðgjöf, sérfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði
2019
VSÓ Ráðgjöf, sumarstarfsmaður á umhverfis- og skipulagssviði
2018-2019
Háskóli Íslands, aðstoðakennari námskeiða í umhverfis- og byggingarverkfræði (hlutastarf meðfram námi)
Menntun
2020
2022
2019
B.Sc., Umhverfis- og byggingarverkfræði, Háskóli Íslands
MPhil., Engineering for Sustainable Development, University of Cambridge
International Honours Program, umhverfisverkfræði, Stanford University.
Fagleg reynsla, endurmenntun & kennsla
Kolefnisútreikningar og greiningar
• Þróun reiknilíkana til að áætla kolefnisspor stórra alþjóðlegra fyrirtækja.
• Greining niðurstaðna og ráðgjöf um framhaldsverkefni t.d. samræmingu kolefnisútreikninga við móðurfélög og ráðgjöf um losunarstuðla.
• Hönnun mælaborða sem tóku saman helstu niðurstöður kolefnisútreikninga til
að styðja við ákvarðanatöku fyrirtækja í loftslagsmálum.
• Umsjón með vottunarferli fyrirtækja í gegnum Science Based Targets initiative
(SBTi), þar sem loftslagsmarkmið þeirra voru formlega staðfest.
Verkefnastjórnun
Verkefnastjórnun á verkefnum tengdum kolefnisbókhaldi og loftslagsáætlanagerð fyrir
alþjóðleg fyrirtæki t.d. vegna
• gagnasöfnunar, hönnunar og uppbyggingar reiknilíkana til að áætla kolefnisspor,
og greiningar niðurstaðna.
• mótunar aðgerða fyrir loftslagsáætlanir
• samræmingar kolefnisútreikninga við móðurfélög
• ráðgjafar um losunarstuðla
• vottunarferlis Science Based Targets initiative (SBTi).
Hringrásarhagkerfi
• Umsjón með styrkumsóknina Hringrásarhúsið sem fékk úthlutað kr. 20
milljónum úr sjóði Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að efla
hringrásarhagkerfið á Íslandi.
• Þróun endurnotkunaráætlana - áætlana vegna meðhöndlunar á byggingar- og
niðurrifsúrgangi, og endurnýtingar byggingarefna.
• Greining tækifæra og hindrana við innleiðingu hringrásarhagkerfisins í íslenskum
byggingariðnaði
Kennslustörf
2021
Fyrirlestur um innleiðingu hringrásarhagkerfis í íslenskum byggingariðnaði fyrir lokaársnema í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands.
