top of page
byggingatækni_verkvist

Slagregn og veðurálag

VERKVIST framkvæmir slagregnsprófanir á byggingarstað til að meta hvort gluggar, hurðir og þéttingar með þeim standist álag frá slagregni og vindi.

 

Prófunin fer fram við stýrðar aðstæður þar sem vatni og loftþrýstingi er beitt á byggingarhluta til að líkja eftir slagveðursálagi. Þannig er hægt að greina hvort vatn kemst inn, staðsetja mögulegar lekaleiðir og meta hvort ísetning, þéttingar og frágangur séu fullnægjandi.

Prófunin nýtist bæði í nýbyggingum og eldri húsum, hvort sem markmiðið er gæðaeftirlit, gallagreining eða lekaleit.

 

Niðurstöðurnar veita skjalfestan og faglegan grundvöll fyrir ákvörðunum um úrbætur, frekari rannsóknir eða staðfestingu á því að frágangur standist kröfur áður en lokafrágangur á sér stað.

 
byggingatækni_verkvist

Hvenær nýtist slagregnsprófun?

  • Við ísetningu glugga og hurða í nýbyggingar. Prófunin er nýtt sem gæðastýring og staðfestir að ísetning og þéttingar uppfylli kröfur áður en endanlegur frágangur fer fram.
     

  • Við gallagreiningu í ísetningu. Þegar grunur leikur á að frávik hafi orðið við ísetningu glugga eða hurða nýtist slagregnsprófun til að greina ófullnægjandi þéttingar eða ranga ísetningu og staðsetja vandann á markvissan hátt.
     

  • Við lekaleit í eldri húsum. Þegar leki hefur komið í ljós en upptök hans eru ekki þekkt má nota slagregnsprófun til að einangra orsökina, hvort sem hún liggur í gluggum, hurðum, samskeytum þeirra við útvegg eða í útveggnum sjálfum.

 
2nina-pascal-6SZLqm3f2rc-unsplash_edited.jpg
byggingatækni_verkvist

Úttekt og niðurstaða

 

Niðurstöður slagregnsprófunar gefa skýra mynd af því hvort vatn kemst inn í byggingarhluta við skilgreint álag frá rigningu og vindi.

 

Þær hjálpa til við að staðsetja leka, meta hvort þéttingar og frágangur séu fullnægjandi og greina hvort vandinn tengist gluggum, hurðum, samskeytum eða aðliggjandi útvegg.

Með slíkri prófun fæst faglegur grundvöllur fyrir ákvörðunum um úrbætur, ábyrgð, frekari rannsóknir eða staðfestingu á því að frágangur standist kröfur áður en honum er lokað.

 

Þannig má draga úr óvissu, koma í veg fyrir kostnaðarsamar rakaskemmdir og styðja við vandaða framkvæmd og viðhald bygginga.

 

Slagregnsprófun

bottom of page