Stefnur
Gæðastefna
VERKVIST tryggir gæði með því að samræma vinnubrögð, fylgja góðum og faglegum starfsháttum í öllum verkefnum. Innleitt hefur verið gæðastjórnunarkerfi í samræmi við staðalinn ISO 9001:2015 Gæðastjórnunarkerfi - Kröfur. VERKVIST fylgir í hvívetna þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda.
Í daglegu starfi er ánægja viðskiptavina í fyrirrúmi. Allt starfsfólk VERKVISTAR ber ábyrgð á gæðum og sinnir störfum sínum af fagmennsku sem byggist á hæfni þess og viðeigandi þjálfun. Árangur í starfsemi fyrirtækisins er metinn og tækifæri eru nýtt til umbóta til að tryggja gæði þjónustu.
VERKVIST lítur á gæðastjórnun sem lykilþátt í að byggja upp traust, tryggja öryggi, lágmarka umhverfisáhrif, skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.
VERKVIST ehf. stefnir að því að stuðla að bættri umhverfisvitund og sjálfbærni í samfélaginu. Fyrirtækið vill vera þekkt sem umhverfisvænt fyrirtæki sem vinnur að verkefnum í samræmi við lög og reglur landsins og vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Allt starfsfólk skal hafa það að markmiði að koma í veg fyrir skaða á umhverfinu og lágmarka umhverfisáhrif.
Stjórnendur sjá til þess að:
-
Stuðla að símenntun og þjálfun allra starfsmanna.
-
Hefja skráningu á eftirlitsþáttum sem tengjast starfsleyfi fyrirtækisins.
-
Setja sérstakar reglur um umhverfismál eftir því sem við á.
-
Setja skýr og mælanleg markmið til að lágmarka umhverfisáhrif.
-
Innleiða umhverfisvottun í verkefnum til að hvetja bæði okkur sjálf og önnur fyrirtæki til að velja vörur og þjónustu sem uppfylla strangar umhverfiskröfur.
-
Hafa jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið. VERKVIST vill stuðla að menntun og vitundarvakningu um umhverfisvernd meðal viðskiptavina, samstarfsaðila og almennings. Það er gert með því að deila þekkingu og góðu verklagi.
-
Stefnan verði endurskoðuð reglulega til að tryggja að hún sé áfram í samræmi við nýjustu þróun á sviði umhverfisverndar.
Fyrirtækið vill vera þekkt sem öruggur vinnustaður sem vinnur að verkefnum í samræmi við lög og reglur landsins og vera til fyrirmyndar og öðrum hvatning í öryggismálum. VERKVIST leggur áherslu á að sinna verkefnum sínum þannig að öryggi og heilsa starfsmanna, auk annarra sem koma að verkefnum, séu í fyrirrúmi. Allt starfsfólk skal hafa það að markmiði að tryggja öryggi.
Stjórnendur sjá til þess að:
-
Nýtt starfsfólk fái þjálfun og sé upplýst um skyldur sínar, ábyrgð og öryggismál.
-
Stuðla að símenntun og þjálfun alls starfsfólks.
-
Tryggja notkun viðeigandi öryggisfatnaðar á þeim svæðum þar sem þörf er á honum.
-
Hefja skráningu á eftirlitsþáttum sem tengjast starfsleyfi fyrirtækisins.
-
Setja sérstakar reglur um öryggismál eftir því sem við á.
-
Endurskoða öryggisstefnuna reglulega til að tryggja að hún sé áfram í samræmi við nýjustu þróun á sviði vinnuverndar.
