top of page

Ljósvist

White Arched Hallway
Image by tommao wang

Dagsljós

 

Dagsljósið er náttúruleg lýsing og er besta lýsingin fyrir vellíðan, afköst og heilsu fólks. Á vorin og haustin styður hún við dægursveiflu líkamans með réttum styrk og ljósrófi frá morgni til kvölds, auk þess að vera umhverfisvæn. Við metum dagsljós í og við byggingar með tilliti til fólksins sem þar dvelur og þeirra starfa sem þeirra bíða.

Rannsóknir hafa leitt í ljós margvíslegan ávinning þess að hafa vel dagslýst rými. Ávinningurinn felst meðal annars í bættum svefngæðum, minna þunglyndi, minni streitu, betri vinnulýsingu, aukinni framleiðni á vinnustöðum og í skólum, lægri orkukostnaði, hærra húsnæðisverði og söluaukningu í verslunum.

Í borgarskipulagi metum við skuggavarp og sólskinstíma til að veita möguleika á góðri ljósvist í og við byggingarnar.

Í byggingum metum við dagsbirtu og glerfleti til að veita að lágmarki fullnægjandi dagsljós inn í byggingar og stundum gott betur.

Okkur þykir gott að vinna með fólki sem vill gera vel og setur heilsu og líðan fólksins í forgang með dagsljósi að leiðarljósi. Við fræðum og þjónum af brennandi áhuga á betri lífsgæðum fólks.

White Arched Hallway

Raflýsing

 

Raflýsingin er mjög mikilvæg á Íslandi yfir vetrartímann og í byggingum sem ekki eru vel hannaðar með tilliti til nýtingu dagsljóss. Með nútíma ljósgjöfum og stýribúnaði er hægt að hanna lýsingu til að styðja við upplifun, vellíðan, heilsu og sjálfbærni.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að raflýsing hefur meðal annars áhrif á svefngæði, geðheilsu, skap, streitu, framleiðni, frammistöðu, sölu og orkunotkun. Að hafa áhrif þýðir að vanda þarf til verks því hægt er að hafa áhrif til góðs og ills. Við beitum þekkingu á áhrifum ljóss á manneskjur í okkar verkum.

Í borgarskipulagi aðstoðum við með götu-, stíga- eða svæðislýsingu, auk mats á ljósmengun og ráðgjafar þar að lútandi.

Í byggingum leggjum við til lausnir sem henta byggingu, starfsemi og notendum með vistvæni að leiðarljósi.

Okkur þykir gaman að koma inn í rými sem ekki þjóna starfsemi eða notendum, hlusta á notendurna, meta möguleika í stöðunni og leggja til hagkvæma lausn sem bætir heilsu, afköst og vellíðan. Einnig finnst okkur gaman að fræða og þjóna, með lífsgæðum fólks og vistvæni í forgrunni.

White Arched Hallway
daylight-1200.jpg

Birtuútreikningar & vistvottun

Dagsbirtu- og raflýsingarútreikningar eru lykilatriði í vottuðum byggingum eins og þeim sem fá Svansvottun eða BREEAM-vottun.

Hægt er að meta hversu mikið náttúrulegt ljós fellur inn í byggingu með hjálp hermunarforrita og er það kallað dagsbirtuútreikningar. Birtuútreikningar eru framkvæmdir samkvæmt byggingarreglugerð og staðli ÍST EN 17037 fyrir dagslýsingu og staðli ÍST EN 12464 fyrir raflýsingu. Útreikningar miða að því að tryggja lágmarks lýsingargæði innandyra og orkusparnað.

Birtuútreikninga er hægt að framkvæma á öllum tegundum bygginga, hvort sem um er að ræða íbúðarhús, atvinnuhúsnæði eða opinberar stofnanir. Útreikningarnir eru sérstaklega mikilvægir í hönnunarferlinu til að tryggja að allar byggingar nýti sér sem best náttúrulegt ljós og raflýsing fylli upp í þar sem á vantar.

Þessar vottanir krefjast oft ákveðinna staðla varðandi orkunýtingu og umhverfisáhrif, þar með talið hvernig náttúrulegt ljós er nýtt til að hámarka orkusparnað og bæta innivist.

asta_logadottir_verkvist_svhv_20x20_tinyhvitt.jpg

Ásta Logadóttir

Fagstjóri Ljósvist

Innivist & lýðheilsa

svarthvítt3.jpg

Alma Dagbjört Ívarsdóttir

Framkvæmdastjóri

Umhverfi &  sjálfbærni

arna_ben_verkvist_sh_20x20 tiny hvit.jpg

Árna Benediktsdóttir

Byggingartæknifræðingur

Innivist & byggingatækni

einar_orn_thorvaldsson_verkvist_20x20_sv

Einar Örn Þorvaldsson

B.Sc Umhverfis- og byggingaverkfræði

Umhverfi & sjálfbærni

klara_sif_sverrisdottir_verkvist_20x20_svhvtinyhvitt.jpg

Klara Sif Sverrisdóttir

Byggingarverkfræðingur 

Umhverfi & sjálfbærni

bottom of page