top of page

ÖHU  öryggi, heilbrigði og umhverfi

vinnuvernd.png
verkvist

Öryggi við niðurrif

Við veitum sérhæfða ráðgjöf og þjónustu við undirbúning og framkvæmd niðurrifs þar sem sérstök áhersla er lögð á öryggi starfsfólks og greiningu áhættuþátta í eldri byggingum. Þar getur verið um að ræða asbest, PCB, blý, myglu, tjöru, olíumenguð efni eða önnur spilliefni sem geta haft áhrif á heilsu þeirra sem starfa við niðurrif og meðhöndlun efna.

Þjónustan felur í sér áhættuskimun og mat á byggingarefnum áður en framkvæmdir hefjast, með það að markmiði að greina hættuleg efni, draga úr áhættu og tryggja að rétt verklag sé viðhaft frá upphafi. Jafnframt leggjum við mat á hvernig haga skuli flokkun, meðhöndlun og förgun efna þannig að þau fari í réttan farveg í samræmi við gildandi kröfur og góða starfshætti.

Við aðstoðum einnig við að sníða ferla, verklag og öryggisráðstafanir hverju sinni út frá aðstæðum á staðnum, umfangi verks og eðli þeirra efna sem um ræðir.

 

Markmiðið er að verja heilsu starfsfólks, lágmarka mengunarhættu og stuðla að öruggri, ábyrgri og vel skipulagðri framkvæmd.

verkvist

Rakaskemmdir og mygla

Við veitum sérhæfða ráðgjöf við endurbætur þar sem rakaskemmdir hafa komið upp, með áherslu á öryggi, heilsuvernd og markvisst verklag á framkvæmdartíma.

 

Í slíkum verkefnum er mikilvægt að horfa ekki eingöngu til þess svæðis sem er skemmt, heldur einnig til nærliggjandi rýma og þeirra áhrifa sem framkvæmdir geta haft á aðra hluta byggingarinnar.

Við leggjum mat á aðstæður hverju sinni og mótum verklag sem dregur úr hættu á krossmengun, verndar starfsfólk sem sinnir viðgerðunum og tekur jafnframt tillit til þeirra sem áfram nota bygginguna á meðan framkvæmdir standa yfir. Þar getur falist að skilgreina aðskilnað svæða, loftflæði, rykvarnir, hreinlætisráðstafanir, verndarbúnað og örugga meðhöndlun skemmdra efna.

Markmið okkar er að tryggja að viðgerðir á rakaskemmdum fari fram með skipulögðum og öruggum hætti, þannig að lágmarkað sé rask á starfsemi, dregið úr hættu á útbreiðslu mengunar og heilsu starfsfólks og notenda húsnæðis sé sinnt af ábyrgð og fagmennsku.

varnir.jpg
bottom of page