top of page

Rakaskemmdir & mygla

 
Astandsskodun_raki_mygla_Verkvist_i_vegg.jpg
byggingatækni_verkvist

Rakaskemmdir og mygla

VERKVIST býr yfir víðtækri sérþekkingu á rakaskemmdum og myglu í byggingum.

 

Sérfræðingar okkar hafa verið meðal frumkvöðla á þessu sviði á Íslandi og komið að rannsóknum, greiningum og ráðgjöf í umfangsmiklum verkefnum, meðal annars fyrir Orkuveituna og Íslandsbanka og vegna Fossvogsskóla og Kársnesskóla.

Sú reynsla nær bæði til starfa hjá VERKVIST og fyrri starfa sérfræðinganna.

 

Við höfum jafnframt tekið þátt í gerð verkferla og stefnumótun um viðbrögð við rakaskemmdum og myglu á Íslandi.

 

Við greinum ástandið og leggjum til næstu skref

Mat á rakaástandi hefst á upplýsingasöfnun og skoðun byggingarinnar. Fyrirliggjandi teikningar eru yfirfarnar og byggingarefni, uppbygging og saga leka eða rakavandamála skoðuð.

 

Við rakaskimun eru notaðir yfirborðsrakamælar til að leita að vísbendingum um frávik í rakaástandi. Jafnframt er leitað að sýnilegum ummerkjum um raka og metið hvort uppbygging, frágangur eða efnisval gefi tilefni til frekari skoðunar.

Rakaskimun ein og sér staðfestir ekki hvort mygla sé til staðar.

 

Niðurstöðurnar ráða næstu skrefum. Við leggjum til frekari rannsóknir þar sem þeirra er þörf, svo sem nánari rakamælingar, skoðun byggingarhluta eða sýnatöku.

Aðrir þættir innivistar eru kannaðir eftir því sem tilefni er til.

 

Þegar ástand og orsakir liggja nægilega skýrt fyrir mótum við tillögur að úrbótum og aðstoðum við forgangsröðun. Áherslan er á að stöðva uppsprettu rakans, bregðast við skemmdum og draga úr líkum á að vandinn komi aftur.

. 

byggingatækni_verkvist

Rakaskemmdir og mygla eru meðal annars ástæða til að hafa samband þegar:

​

  • Sjáanleg einkenni koma fram: rakablettir, upplitun, bólgur í málningu eða hreyfingar í byggingarefnum, gólfefnum eða viðarklæðningum

  • Lykt sem bendir til raka eða myglu sem finnst í rými

  • Íbúar eða starfsfólk finna fyrir einkennum sem gætu tengst innilofti (ertingu í öndunarfærum, ofnæmisviðbrögðum)

  • Til stendur að kaupa eða selja fasteign og óvissa ríkir um ástand hennar

  • Vatnstjón eða leki hefur átt sér stað

  • Fyrirhugaðar eru breytingar á einangrun eða loftræsikerfi, sem geta haft áhrif á rakajafnvægi

  • Sem hluti af reglubundnu viðhaldi eða ástandsskoðun eldra húsnæðis

  • Heimilisskoðun, sjá nánari upplýsingar hér.

 
 
Desk
20230224_144711_edited.jpg
byggingatækni_verkvist

Sýnataka og myglugreining

 

Þrjár tegundir sýnatöku eru notaðar eftir aðstæðum:

​

  • Efnissýni,  kjarnar eða flísar teknar úr byggingarefnum (gólfefnum, undirlagi, einangrun, málningu, veggjum, steypu, timbri) og skoðaðir í smásjá. Þessi sýni staðsetja hvar mygluvöxtur er eða hefur verið til staðar.

  • Loftsýni þar sem safnað er gróum og efnum.

  • DNA-sýni (qPCR), stroksýni af uppsöfnuðu ryki send í sérhæfða greiningu til að greina hvort að frávik eru til staðar í magni eða tegundum á myglusveppum í rykinu. Þessi sýni gefa visbendingar um stöðu í nálægu rými en stqaðsetja ekki rakasvæði eða skemmdir.​

​

​

byggingatækni_verkvist

Niðurstöður skoðunar og sýnatöku eru nýttar til að móta skýra aðgerðaáætlun, hvort sem um er að ræða viðgerð, breytingu á loftræsingu eða einangrun eða fmótvægisaðgerðir.

 

VERKVIST hefur einnig tekið þátt í mótun verkferla og stefnumótunar fyrir aðgerðir gegn rakaskemmdum og myglu á landsvísu, ekki bara í einstökum verkefnum.

​

Af hverju skiptir greining máli?

Ógreind mygla og rakaskemmdir getur haft áhrif bæði á heilsu þeirra sem dvelja í byggingunni og á endingu byggingarinnar sjálfrar. Því fyrr sem vandamálið er greint, því einfaldara og ódýrara er að bregðast rétt við — og því minni hætta er á að viðgerð miði á rangan orsakavald.

​

Verðmæti fyrir viðskiptavininn

  • Rétt greind orsök í stað ágiskunar. Samsetning sjónrænnar skoðunar, mælinga og sýnatöku (efnis-, yfirborðs- og DNA-sýna) tryggir að niðurstaðan byggi á gögnum, ekki tilfinningu.

  • Skýr næstu skref. Niðurstöður eru settar fram sem hluti af aðgerðaáætlun eða rakavarnaráætlun, ekki bara greiningarskýrslu.

  • Þekking sem nær út fyrir eitt verkefni. Reynsla VERKVIST af verkferla- og stefnumótunarvinnu fyrir Ísland í heild þýðir að ráðgjöfin byggir á breiðari þekkingargrunni en einstök verkefni gefa ein og sér.

 
 
 
Hlynur_Juliusson_og_Sylgja_Dogg_Sigurjonsdottir_Verkvist_Innivist_og_lydheilsa_edited.jpg
svarthvítt3.jpg

Alma Dagbjört Ívarsdóttir

Framkvæmdastjóri

Umhverfi &  sjálfbærni

bodvar_bjarnason_verkvist_20x20_svhvtiny

Böðvar Bjarnason

Sviðsstjóri

Innivist & byggingatækni

sds svhv bakgr.jpg

Sylgja Dögg

Framkvæmdastjóri

Innivist & lýðheilsa

arnar_thor_saevarsson_verkvist_20x20_svhvtinyhvitt.jpg

Arnar Þór Sævarsson 

Fagleiðtogi rakaöryggi

Innivist &  byggingatækni

arna_ben_verkvist_sh_20x20 tiny hvit.jpg

Árna Benediktsdóttir

Byggingartæknifræðingur

Innivist & byggingatækni

heiddis_tinna_gudmundsdottir_verkvist_20x20_svhvtinyhvott.jpg

Heiðdís Tinna Guðmundsd.

Byggingartæknifræðingur 

Innivist & byggingatækni

image (7)_edited_edited.jpg

Helga María Adolfsd.

​Fagleiðtogi lífsferilsgreining

Umhverfi &  sjálfbærni

hlynur_juliusson_verkvist_20x20_svhv -hvitt_tiny.jpg

Hlynur Júlíusson

Fagleiðtogi endurbætur

Innivist & byggingatækni

johannes_olafsson_verkvist_20x20_svhvtinyhvitt.jpg

Jóhannes Ólafsson

Efna- og orkuverkfræðingur

Innivist & byggingatækni

klara_sif_sverrisdottir_verkvist_20x20_svhvtinyhvitt.jpg

Klara Sif Sverrisdóttir

Byggingarverkfræðingur 

Umhverfi & sjálfbærni

kristjan_ingi_thordarson_verkvist_20x20_svhv tinyhvitt.jpg

Kristján Ingi Þórðarson

Byggingartæknifræðingur 

Innivist & byggingatækni

Ævar verkvist

Ævar Kærnested

Byggingartæknifræðingur

Innivist & byggingatækni

bottom of page