top of page

Loftgæðamælar

Wooden Stairs
verkvist

Loftgæðamælar fyrir innivist

Fylgstu með loftgæðum innandyra á einfaldan og áreiðanlegan hátt.
Við hjá VERKVIST seljum og leigjum  snjalla inniloftgæðamæla sem hentar fyrir heimili, skrifstofur, skóla, verslanir og önnur atvinnuhúsnæði.

 

Loftgæðamælar hjálpar þér að greina loftgæði í rauntíma og bregðast hratt við þegar loftgæði versna.​​

Loftgæði í húsnæði hafa veruleg áhrif á heilsu, líðan og afköst þeirra sem þar dvelja eða starfa. Gott inniloft stuðlar að betri einbeitingu, aukinni vellíðan og heilbrigðara umhverfi.

Loftgæði eru metin með því að fylgjast með helstu þáttum sem vitað er að hafa áhrif á inniloft, svo sem hitastigi, rakastigi, koltvísýringi (CO₂), svifryki og öðrum ögnum, auk rokgjarnra lífrænna efna. Þótt slíkar mælingar gefi ekki fullkomna mynd af öllu sem loftið inniheldur, veita þær áreiðanlega vísbendingu um stöðuna og helstu áhættuþætti fyrir heilsu.

​​​​​

verkvist

Loftgæðamælar - fyrir heimili, stofnanir og atvinnuhúsnæðið

Loftgæðamælingar eru framkvæmdar með síritum frá ATMO, Inbiot eða Airgradient.

 

Með síritun loftgæða má fá upplýsingar um breytingar og frávik á eftirfarandi þáttum:  hita, loftraka, svifryki (PM1, PM2,5, PM10), TVOC, formaldehýði, NOX, hávaða og lýsingu.

Síritun á C02 gefur upplýsingar um virkni loftskipta miðað við notkun og hvort að loftskipti í rými standist byggingarreglugerð þar sem krafan er sú að C02 fari að jafnaði ekki yfir 800 ppm.

Hægt er að fá beinan aðgang að upplýsingum í gegnum forrit í símanum og fylgjast þannig með loftgæðum í rauntíma.

 

Einnig er hægt að fá úrvinnslu og greiningu á gögnum með tillögum til úrbóta.

loftgæðamæling verkvist
graywolf.webp
verkvist

Loftgæðamæling & skimun

 

VERKVIST notar Graywolf loftgæðamæli til þess að koma í úttektir og meta loftgæði hvort sem er með punktmælingum eða með síritun.

Hægt er að mæla og meta styrk mismunandi lofttegunda eftir aðstæðum hverju sinni. 

Síritun og punktmælingar með Graywolf mæli styðja við og gefa nákvæmari niðurstöður en síritamælingar með einfaldari loftgæðamælum eins og eru nefndir hér ofar. 

Graywolf mælingar koma að gagni þegar meta á styrk ávkeðinna rokgjarnra efna á meðan hefðbundinr loftgæðamælar meta breytingar eða frávik á TVOC (total volatile organic compounds) eða heildarmagn slíkra efna í loftinu hverju sinni.

 

Hægt er að skoða og meta meðal annars styrk formaldehýðs, köfnunarefnisoxíðs (NOX) frá umferð, brennisteinsdíoxíð frá eldgosum eða brennisteinsvetni frá jarðavarmavirkjunum svo eitthvað sé nefnt.

verkvist

Efnagreiningar & rokgjörn efni VOC

Ítarlegri VOC mælingar eru framkvæmdar með ákveðnum búnaði til þess að greina nánar þær rokgjörnu lofttegundir sem eru í loftinu.

Þær gagnast til að:

  • Meta hvaða rokgjörnu efni eru til staðar ef síritamælingar sýna frávik.

  • Kanna styrk efna í innilofti.

  • Skoða uppruna efnanna, frá notendum eða byggingu.

  • Gefa tillögur til úrbóta.

  • Staðfesta efnisval við vistvottanir eins og BREEAM eða Svaninn.

product-thumbnail-k.png
bottom of page