Forvitnin í æsku skilar sér í framtíðarlausnum fyrir íslenska byggingariðnaðinn
- Íris Magnúsdóttir
- Apr 16
- 3 min read
Allt frá barnæsku hefur byggingartæknifræðingurinn Ævar Kærnested, viljað kafa dýpra og vita „af hverju?“ Sú hugsun hefur nú skilað sér í raunhæfum lausnum fyrir byggingariðnaðinn en Ævar útskrifaðist sem byggingartæknifræðingur og húsasmíðameistari frá Háskóla Reykjavíkur í vor og gerði lokaverkefni um varðveitingu íslenskra útveggja. Úr verkefninu spruttu raunhæfar og framtíðarmiðaðar lausnir fyrir byggingariðnaðinn sem hafa nú þegar verið nýttar við fjölbreyttar greiningar- og þróunarverkefni hjá VERKVIST.

Það er okkur því hjá VERKVIST sönn ánægja að tilkynna að Ævar Kærnested hefur nú hafið full störf hjá VERKVIST. Ævar hefur starfað hjá okkur samhliða námi síðan í maí 2024 og lagt sitt af mörkum í fjölbreyttum greiningar- og þróunarverkefnum sem tengjast byggingatækni, heilnæmri innivist, loftgæðum og umhverfismálum.
Ævar sem einnig er húsasmíðameistari á að baki sjö ára reynslu í byggingariðnaði, bæði við framkvæmd, eftirlit, úttektir og ástandsgreiningar. Hann hefur skarað fram úr í námi, var dúx í menntaskóla og verkefni hans endurspegla dýpt, fagmennsku og áhuga á sviði umhverfis og bygginga.
Rótgróinn áhugi og dýpt í hugsun
Áhugi Ævars á eðli hluta og hvernig þeir virka kviknaði snemma – sem barn spyrjandi stöðugt „af hverju?“. Sú þörf fyrir að skilja málin og ferla í kjölinn, fremur en að sætta sig við yfirborðssvör, hefur fylgt honum allt frá því hann byrjaði í húsasmíði og áfram inn í háskólanám í byggingartæknifræði.
Þessi forvitni og djúpa hugsun skín í gegn í lokaverkefninu hans, þar sem hann leitar ekki eingöngu svara við því hvað veldur skemmdum á útveggjum, heldur hvers vegna – og hvernig við getum hannað betri lausnir með tilliti til byggingareðlisfræði og raunverulegra íslenskra aðstæðna.
„Það hefur verið ómetanlegt að vinna að fjölbreyttum verkefnum og með þverfaglegu teymi hjá VERKVIST á meðan á náminu stóð – það gaf mér bæði dýpri skilning og innsýn sem ég gat fléttað beint inn í verkefnið mitt. Ég er spenntur fyrir því að halda áfram að kafa ofan í þessi viðfangsefni og nýta þekkinguna í þágu raunverulegra lausna,“ segir Ævar.
Lokaverkefnið: Varðveiting íslenskra útveggja
Í verkefninu Varðveiting íslenskra útveggja rannsakaði Ævar byggingareðlisfræðileg vandamál sem fylgja hinum svokallaða „íslenska útvegg“, byggingaraðferð sem einkennist af steinsteyptum veggjum sem eru einangraðir að innan. Slíkir veggir eru sérstaklega viðkvæmir fyrir steypuskemmdum vegna þess að steypan er óvarin frá veðri og vindum.
Markmið verkefnisins var að rannsaka þá grotnunarferla sem íslenski útveggurinn verður fyrir og síðan stilla upp og bera saman mismunandi varðveitingaraðferðir með aðstoð hita og rakaflæði greiningar forritinu WUFI® Pro.
Niðurstöður og helstu lærdómar
Ævar greinir að íslenski útvegurinn hafi almennt mjög hátt rakastig – oft yfir hættumörkum (>85% RH) – og að veðurálag spili þar stærsta hlutverkið.
Helstu niðurstöður sýna meðal annars:
Loftræst klæðning að utan án viðbótar einangrunar dugar til að vatnsverja steypu en útþornun steypunnar verður enn afskaplega hæg útaf hitastigi hennar
Viðbótareinangrun að utan – jafnvel allt niður í 25 mm – getur skilað miklum árangri við að stuðla að útþornun steypunnar.
Múreinangrunarkerfi reyndist áhrifarík lausn í byggingum þar sem ekki er heimilt að breyta útliti.
Lykilþáttur í árangri er hækkun á hitastigi steypunnar, sem stuðlar að útþornun og dregur úr skemmdavöldum.
„Ævar hefur skilað mjög vönduðu og hagnýtu verkefni sem endurspeglar frábæra innsýn í byggingareðlisfræði og raunhæfar lausnir fyrir íslenskar aðstæður. Hann bætir við teymið okkar dýrmætri sérþekkingu og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs,“ segir leiðbeinandi Ævars í verkefninu, Böðvar Bjarnarsson sem er byggingatækni- og byggingaeðlisfræðingur og einn af eigendum VERKVISTAR.

Hugsar til framtíðar eldri bygginga
Með þessu verkefni leggur Ævar til mikilvægt framlag til umræðunnar um viðhald og verndun eldri bygginga á Íslandi – og sýnir skýrt hvernig samtvinna má fræði, hugbúnað og hagnýta reynslu í þágu sjálfbærrar byggingarmenningar. Það er sérstaklega ánægjulegt að verkefnið tengist beint verkefnum sem Ævar hefur sinnt hjá Verkvist og nýtist þannig strax í hagnýtri notkun.
Við óskum Ævari innilega til hamingju með áfangann og hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Framtíð íslenskrar byggingartækni er björt með fagfólk eins og Ævar í sínu teymi.
Comments