top of page

Heimilsskoðanir í sumarfrí

  • 11 hours ago
  • 1 min read

Sérfræðingar VERKVISTAR þurfa, eins og aðrir, að taka sér sumarfrí, hlaða batteríin og safna kröftum fyrir verkefni næsta vetrar. Af þeim sökum lokum við tímabundið fyrir nýjar pantanir í heimilisskoðanir og hefjum skoðanir að nýju 15. ágúst.

Á meðan verður hægt að skrá sig á biðlista.


Heimilisskoðanir eru mikilvægur hluti af þeirri þjónustu sem VERKVIST vill veita almenningi. Við vitum að grunur um raka, myglu eða ófullnægjandi loftgæði getur valdið mikilli óvissu og að erfitt getur verið að átta sig á því hvaða skref eigi að taka.

Markmið skoðananna er að aðstoða fólk við að meta stöðuna og taka upplýstar ákvarðanir um mögulegar úrbætur, viðhald eða frekari rannsóknir.


Við leggjum áherslu á að veita skýra og faglega ráðgjöf eftir fremsta megni, hvort sem um er að ræða rakaskemmdir, merki um leka, ófullnægjandi loftgæði eða önnur atriði sem geta haft áhrif á innivist og ástand húsnæðis.


Við þökkum kærlega fyrir skilninginn og hlökkum til að taka aftur á móti bókunum frá og með 15. ágúst.

Sumarkveðja,


Sérfræðingar VERKVISTAR

 
 
 

Comments


bottom of page