top of page

Byggingatækni

 
Water Drops
byggingatækni_verkvist

Rakaöryggi

Rakaöryggi við hönnun og framkvæmd felur í sér að takmarka skemmdir og afleiðingar raka.  Ef rakaástand fer út fyrir öryggismörk raka geta afleiðingar komið fram eins og fúi í timbri eða trjákenndum efnum, örveru- og mygluvöxtur, aukin útgufun frá byggingarefnum og aukin varmaleiðni í einangrandi byggingarefnum. Einnig geta komið fram frostskemmdir, tæring málma, úrfellingar eða hreyfingar á byggingarefnum. Síðast en ekki síst hefur óeðlilegt rakaástand bygginga áhrif á loftgæði.

Rakaöryggiseftirlit á verktíma felst í því að tryggja veðurvarnir á framkvæmdatíma og að verkþáttaröð valdi ekki óþarfa rakaálagi. Rakaöryggi eykur endingu, hámarkar nýtingu og lágmarkar vistspor bygginga.

 

VERKVIST útbýr rakavarnaráætlanir fyrir Svansvottun og sinnir hlutverki rakavarnarfulltrúa.

byggingatækni_verkvist

Byggingareðlisfræði

Við hjá VERKVIST teljum að byggingaeðlisfræði sé lykillinn að sjálfbærum, heilnæmum og vistvænum byggingum. Með samþættingu sjálfbærni og byggingaeðlisfræði getum við stefnt að því að  byggja húsnæði sem er ekki aðeins öruggt og endingargott, heldur einnig í sátt við náttúru, heilsu og vellíðan. 

 

Við notum meðal annars  WUFI hermihugbúnað í okkar vinnu.  Greiningar eða hermun með  WUFI gefur upplýsingar um raka- og hitaflutning í gegnum byggingarhluta en það gagnast við val á byggingarefnum m.a. til að  forðast byggingargalla og stuðla að orkusparnaði.  Einnig er hægt að spá fyrir um líkur á myglu í ákveðinni uppbyggingu. Hermun er framkvæmd með íslenskum veðurgögnum eitt ár í senn og metið í framhaldi hver hættan er á rakaþéttingu og jafnvel mygluvexti miðað við ákveðna uppbyggingu.

Á þennan hátt mótar VERKVIST framtíðina í byggingariðnaði með viðskiptavinum sínum.

Buildings from Below
MessSystem-Standard.jpg

Loftþéttleiki og slagregnspróf

 
byggingatækni_verkvist

VERKVIST framkvæmir slagregnsprófanir á byggingarstað til að kanna hvort gluggar, þéttingar og tengingar milli glugga og útveggja standist slagveðursálag. Prófunin er yfirleitt framkvæmd eftir að gluggar eru komnir í og nýtist til að greina leka, ófullnægjandi þéttingar eða frávik í ísetningu áður en endanlegur frágangur á sér stað.

VERKVIST framkvæmir loftþéttleikaprófanir til að kanna hvort byggingar, byggingarhlutar, rakavarnir og þéttilög séu nægilega loftþétt. Prófunin nýtist til að greina óþéttleika sem geta valdið varmatapi, rakaflutningi, óþægindum eða aukinni hættu á rakaskemmdum. Loftþéttleikaprófanir henta sérstaklega í vottuðum verkefnum, timburhúsum, byggingum með timburþökum og verkefnum þar sem gerðar eru ríkar kröfur til orkunýtni, innivistar og rakaöryggis.

bottom of page