Byggingar fyrir fólk og umhverfi
- 1 day ago
- 2 min read
Björg Bjarnadóttir til liðs við VERKVIST sem fagleiðtogi umhverfisvottunar

VERKVIST hefur ráðið Björgu Bjarnadóttur til starfa sem fagleiðtoga umhverfisvottunar.
Björg kemur til fyrirtækisins með sterkan fræðilegan grunn og alþjóðlega reynslu á sviði sjálfbærrar mannvirkjagerðar, loftslagsmála og sjálfbærniráðgjafar. Hún er með B.Sc. í umhverfis
- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í Engineering for Sustainable Development frá University of Cambridge.
Undanfarin ár starfaði Björg hjá ráðgjafarfyrirtækinu 3Keel í Oxford þar sem hún ráðlagði alþjóðlegum fyrirtækjum um kolefnisspor, loftslagsstefnu og sjálfbærni. Áður starfaði hún hjá VSÓ Ráðgjöf og kom þar meðal annars að BREEAM-vottunum, sjálfbærniverkefnum og þróun lausna sem styðja við hringrásarhagkerfið í íslenskum byggingariðnaði.
Hjá VERKVIST mun Björg leiða áfram uppbyggingu umhverfisvottana og efla ráðgjöf fyrirtækisins á sviði sjálfbærni. Ráðning hennar styður við framtíðarsýn fyrirtækisins um að samþætta byggingatækni, innivist og sjálfbærni þannig að mannvirki séu hönnuð með langtímaverðmæti í huga, fyrir fólkið sem notar þau og umhverfið sem þau verða hluti af.
„Loftslagsáhætta er ofar í huga Breta“
Aðspurð um hvað hafi dregið hana til VERKVISTAR segir Björg skýra áherslu fyrirtækisins á heilsu, vellíðan og sjálfbærni hafa heillað hana, auk þess sem spennandi sé að taka þátt í uppbyggingu ungs og metnaðarfulls fyrirtækis.
Björg segir einn helsta muninn á stefnu sjálfbærnimála á Íslandi og Bretlandi vera að þar sé meiri áhersla lögð á loftslagsáhættu - áhrif loftslagsbreytinga á fyrirtæki og samfélag. Til dæmis eru loftslagsbreytingar nú þegar farnar að hafa raunveruleg áhrif á timburframleiðslu, uppskeru matvæla og fleira, og þar með neikvæð fjárhagsleg áhrif á fyrirtæki. Þessi fyrirtæki hafa því haft aukinn áhuga á því að greina sína loftslagsáhættu og fara í aðgerðir til að lámarka hana.
Endurnotkun byggingarefna lykilatriði
Sjálfbærni snýst að mati Bjargar um að byggja upp, þróa og viðhalda kerfum sem mæta þörfum nútímans án þess að skerða lífsgæði komandi kynslóða en það er ekki hægt á þess að taka umhverfi okkar inn í myndina. Hún segir að mikilvægt sé að minna sig á þetta stærra samhengi.Ef hún gæti haft áhrif á eina breytingu í íslenskum byggingariðnaði á næstu tíu árum væri það aukin endurnotkun byggingarefna. Samkvæmt nýjustu tölum HMS megi rekja nær helming kolefnisspors nýbygginga til framleiðslu byggingarefna og um 10% til niðurrifs. Með aukinni endurnotkun mætti draga úr losun á báðum stöðum og um leið skapa einstök verkefni með sérstöðu og sögu úr nærumhverfinu.
Mikilvæg viðbót við teymið
„Við erum afar þakklát fyrir að fá Björgu til liðs við VERKVIST. Hún kemur með einstaka blöndu af sterkum fræðilegum grunni, alþjóðlegri reynslu og metnaði til að hafa raunveruleg áhrif. Sýn hennar á sjálfbærni fellur einstaklega vel að þeirri stefnu sem við höfum markað fyrirtækinu,“ segir Alma Dagbjört Ívarsdóttir, framkvæmdastjóri VERKVISTAR.
„Við viljum ekki aðeins hjálpa viðskiptavinum okkar að uppfylla kröfur um umhverfisvottanir heldur styðja við þróun heilnæmra og endingargóðra mannvirkja sem skapa verðmæti til langs tíma. Þar mun Björg gegna lykilhlutverki".

Comments