Umhverfissérfræðingur til leigu
- Sylgja D. Sigurjónsdóttir

- Jan 25
- 1 min read

Sérfræðingur til leigu
Umhverfissérfræðingur til leigu er sérfræðingur í teyminu sem styður söluteymi og tryggir faglega upplýsingagjöf gagnvart markaðnum.
Umhverfisvottanir bygginga eru orðnar lykilþáttur í flestum stærri byggingarverkefnum. Til að uppfylla kröfur vottunarkerfa á borð við BREEAM og Svansvottun þurfa byggingaraðilar að leggja fram rétt, samræmd og áreiðanleg gögn um þær byggingarvörur sem notaðar eru í verkefnum. Slík gögn koma að stórum hluta frá framleiðendum, innflytjendum og söluaðilum byggingarvara.
Í þessu samhengi gegna þeir aðilar sem selja og miðla byggingarvörum lykilhlutverki. Þeir þurfa að geta svarað skýrt og faglega:
hvernig vörur uppfylla viðmið vottunarkerfa
hvaða forsendur liggja að baki mati
hvaða gögn styðja slíkar fullyrðingar
Umhverfisvottunarkerfi bygginga gera auknar kröfur til upplýsinga um hvernig byggingarvörur falla að viðmiðum og hvaða gögnum þarf að skila inn.
Ósamræmdar eða ófullnægjandi upplýsingar geta haft áhrif á samskipti við viðskiptavini, framgang verkefna og þátttöku í útboðum.
Með Umhverfissérfræðingi til leigu fá fyrirtæki aðgang að sérhæfðri umhverfisþekkingu sem starfar sem hluti af teyminu, án þess að uppfylla heilt stöðugildi.
Þjónustan er faglegt bakland fyrir sölu- og markaðsteymi og styður fyrirtæki í samskiptum við hönnuði, verkkaupa og byggingaraðila með samræmdri og áreiðanlegri upplýsingagjöf.
Sjá nánari upplýsingar á Sérfræðingur til leigu | VERKVIST





Comments