top of page

Vettvangsferð í Hamranes: hjúkrunarheimili úr 111 stáleiningum

7 hours ago
1 min read

Í síðasta mánuði fór starfsfólk VERKVISTAR í vettvangsferð í Hamranes í Hafnarfirði þar sem nýtt hjúkrunarheimili er að taka á sig mynd. Húsið er að mestu forsmíðað úr 111 stálhúseiningum sem eru fluttar sjóleiðis frá Póllandi til Hafnarfjarðar, hífðar á sinn stað og boltaðar saman. Einingarnar eru engin smásmíði en hver þeirra er um 17 metrar á lengd og vegur um 30 tonn. Í flestum einingum eru tvö fullbúin hjúkrunarrými, sitt í hvorum endanum.



Hvert hjúkrunarrými er 28 m² einbýli með stofu, svefnaðstöðu, baðherbergi og eldhúsinnréttingu. Húsinu er skipt í níu heimiliseiningar en í hverri einingu er setustofa, borðstofa og eldhús. Á jarðhæð verða sameiginleg rými á borð við fjölnotasal, sjúkraþjálfun og hárgreiðslustofu. Vestan við húsið er garður sem sést frá öllum deildum.



Framkvæmdir hafa gengið hratt. Jarðvinna hófst í febrúar og fyrri sending eininga kom til landsins í september. Samkvæmt áætlun verður húsið fullreist í byrjun nóvember og verklok eru áætluð 1. mars 2027. Aðalhönnuður er ARKÍS arkitektar og Íslenskar fasteignir annast framkvæmdir og byggingarstjórn.



VERKVIST hefur unnið náið með verkefnateyminu allt frá frumhönnunarstigi sem BREEAM-matsaðili, en stefnt er að vottuninni „Very Good“. Við stýrum gagnasöfnun ásamt forgangsröðun og skipulagningu aðgerða svo verkefnið nái umhverfismarkmiðum sínum. VERKVIST sér einnig um orkuútreikninga fyrir bygginguna. Þeir sýna að hönnun hússins dregur verulega úr orkunotkun og kolefnislosun í rekstri, samanborið við lágmarkskröfur byggingarreglugerðar.

 
 
 

Comments


bottom of page