top of page

Betri birta, betri byggingar — Ásta Logadóttir til VERKVISTAR

35 minutes ago
2 min read
Ásta Logadóttir

Dr. Ásta Logadóttir hefur gengið til liðs við VERKVIST sem fagstjóri ljósvistar. Með komu hennar styrkist ráðgjöf fyrirtækisins um dagsbirtu, raflýsingu og gæði bygginga fyrir fólkið sem notar þær. Ásta mun jafnframt taka þátt í að móta áfram  svið innivistar og lýðheilsu ásamt Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur.

Ásta er rafmagnsverkfræðingur með doktorspróf í byggingarverkfræði frá Álaborgarháskóla. Hún hefur áralanga reynslu af rannsóknum og ráðgjöf á sviði ljósvistar og innivistar. Hún hefur meðal annars komið að þróun krafna og leiðbeininga um ljósvist í íslenskri byggingarreglugerð.



Betri ákvarðanir um birtu og lýsingu

Sérþekking Ástu nýtist við nýbyggingar, endurbætur og mat á aðstæðum í húsnæði sem þegar er í notkun. Hún veitir meðal annars lýsingarráðgjöf, annast útreikninga, mælingar og greiningar og ráðleggur um sólarljós og skuggavarp í skipulagi.

Með því að skoða birtuskilyrði snemma í hönnunarferlinu geta verkkaupar og hönnunarteymi tekið betur upplýstar ákvarðanir um glugga, rýmisskipulag, form bygginga og lýsingu. Í núverandi húsnæði getur slík greining hjálpað til við að finna hvað má bæta og forgangsraða úrbótum.


Ljósvist VERKVIST


Byggingar eru fyrir fólk

VERKVIST verkfræðistofa er sérhæfð í ráðgjöf og greiningum varðandi  innivist og sjálfbærni bygginga. Við höfum lengi unnið með áhrif bygginga á heilsu og líðan, meðal annars út frá loftgæðum, raka, efnisvali og byggingareðlisfræði. Með komu Ástu tengjum við þá þekkingu enn betur við dagsbirtu og raflýsingu.

Við viljum vinna með verkkaupum, húsbyggjendum og hönnunarteymum sem hafa metnað fyrir byggingunum sínum og horfa á gæði þeirra sem eina heild. Við komum með sérþekkinguna sem þarf til að greina aðstæður, meta valkosti og finna raunhæfar lausnir. Þar er innivist höfð að leiðarljósi og skoðuð í samhengi við byggingareðlisfræði, efnisval, endinguna, orkunotkun og umhverfisáhrif — frá hönnun til framkvæmda og reksturs.

Við bjóðum Ástu hjartanlega velkomna, ljósberann okkar og nýjan liðsfélaga í þverfaglegum sérfræðingahópi VERKVISTAR.


Hér má finna frekari upplýsingar um Ástu Logadóttir

hafið samband í tölvupósti asta@verkvist.is

 
 
 

Comments


bottom of page