Leitarniðurstöður
Search this site
48 results found with an empty search
- Baking for Beginners | VERKVIST
Baking for Beginners Price $200 Duration 3 Weeks Enroll < Back About the Course This is placeholder text. To change this content, double-click on the element and click Change Content. Want to view and manage all your collections? Click on the Content Manager button in the Add panel on the left. Here, you can make changes to your content, add new fields, create dynamic pages and more. Your collection is already set up for you with fields and content. Add your own content or import it from a CSV file. Add fields for any type of content you want to display, such as rich text, images, and videos. Be sure to click Sync after making changes in a collection, so visitors can see your newest content on your live site. Your Instructor Marcus Harris This is placeholder text. To change this content, double-click on the element and click Change Content. To manage all your collections, click on the Content Manager button in the Add panel on the left.
- Hafa samband | VERKVIST
Þarft þú skoðun á fyrirtæki eða heimili vegna rakaskemmda eða myglu ? Við sérhæfum okkur einnig í öðrum hlutum innivistar s.s. loftgæðum, hljóðvist, vottunum, byggingartæknifræði, prófunum og vali á réttum byggingarefnum o.fl. Sendu okkur línu og við höfum samband eins fljótt og auðið er. Starfsfólk VERKVISTAR Hafa samband Hallgerðargata 13 105 Reykjavík + 354 419 1500 verkvist@verkvist.is Nafn Netfang Erindi Takk fyrir að hafa samband SENDA
- Vörur | VERKVIST
Rakamælar, loftgæðamæla og DNA sýni. Hægt að panta með því að senda póst á verkvist@verkvist.is Vefverslun Hér er hægt að panta rakamæla og loftgæðamæla. Panta Quick View Protimeter surveymaster rakamælir Price 139.000 kr. Quick View DNA sýni Price 55.000 kr. Quick View New Loftgæðamæling Price 80.000 kr. Quick View ATMO loftgæðamælir Price 115.000 kr.
- EPD blöð | VERKVIST
Umhverfisyfirlýsing er íslenska þýðingin á „Environmental Product Declaration“, EPD. EPD blöð eru stöðluð og staðfest af utanaðkomandi þriðja aðila, EPD blöð gefa upp umhverfisáhrif vöru yfir allan lífsferil hennar og eru í raun samantekt á niðurstöðum lífsferilsgreiningar á vöru. EPD blöð Hvað er EPD? Umhverfisyfirlýsing er íslenska þýðingin á „Environmental Product Declaration“, EPD. EPD blöð eru stöðluð og staðfest af utanaðkomandi þriðja aðila, EPD blöð gefa upp umhverfisáhrif vöru yfir allan lífsferil hennar og eru í raun samantekt á niðurstöðum lífsferilsgreiningar á vöru. Lífsferilsgreining (LCA) er aðferðafræði sem að notuð er við gerð EPD blaða og fylgir stöðlum eins og ISO 14040, 14044 og EN15804 fyrir LCA almennt og fyrir byggingavörur. Eftirspurn eftir EPD blöðum fer ört vaxandi í byggingargeiranum, bæði vegna aukinnar vitundarvakningar um umhverfismál og breytinga á byggingarreglugerð. EPD sérfræðingar sjá um ferlið Sérfræðingar okkar hjá Verkvist hafa aðstoðað fyrirtæki við að einfalda ferlið við gerð á EPD blöðum. Gerð EPD blaða krefst yfirleitt sértækrar þekkingar og reynslu af LCA greiningum, þar sem ferlið er flókið og krefjandi. Ferlið felst í því að rata um landslag hýsingaraðila (program operators) og mismunandi reglur um vöruflokka (PCR – product category rules). Við bjóðum bæði sérfræðiþekkingu í LCA og reynslu af gerð EPD blaða fyrir fjölbreyttar vörur á íslenskum markaði. Hvort sem þú ætlar að gefa út þitt fyrsta EPD blað eða bæta við fleiri, þá getum við séð um allt ferlið fyrir þig. Bættu ferla, minnkaðu áhrif Með aðstoð LCA getum við lagt til breytingar á ferlum sem gætu haft jákvæð áhrif á umhverfið og rekstrarhagkvæmni. Kortlagning á helstu umhverfisáhrifum (hot spot analysis) er lykillinn að því að greina hvar er hægt að ná ávinning með minnkuðum umhverfisáhrifum. Auk þess að sjá um allt EPD ferlið frá upphafi til enda, geta sérfræðingar okkar veitt innsýn í umhverfisáhrif vöru eða efnis yfir allan líftíma þess, frá vinnslu hráefna til förgunar. Alma Dagbjört Ívarsdóttir Framkvæmdastjóri Umhverfi & sjálfbærni +354 660 2164 alma@verkvist.is Björg Bjarnadóttir Fagleiðtogi umhverfisvottun Umhverfi & sjálfbærni +354 863 6211 bjorg@verkvist.is Einar Örn Þorvaldsson B.Sc Umhverfis- og byggingaverkfræði Umhverfi & sjálfbærni +354 899 0282 einar@verkvist.is Helga María Adolfsd. Fagleiðtogi lífsferilsgreining Umhverfi & sjálfbærni +354 692 4815 helgamaria@verkvist.is Klara Sif Sverrisdóttir Byggingarverkfræðingur Umhverfi & sjálfbærni +354 615 4885 klara@verkvist.is
- Björg Bjarnadóttir | VERKVIST
Jón Pálsson er iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur með Msc gráðu fra Álaborgarháskóla. Árið 2021 lauk hann viðbótarnámi Executive Blue MBA frá Copenhagen Business school. Auk þess hefur hann víðtæka reynslu af atvinnurekstri, stjórnun, nýsköpun og framkvæmdum, bæði í eigin fyrirtækjum og annarra. Þar á meðal verkfræðistofu og fyrirtæki í byggingariðnaði. Verkfræðingur Björg Bjarnadóttir Fagleiðtogi umhverfisvottun Umhverfi & sjálfbærni Sjálfbærniverkfræðingur / MPhil. Umhverfisvottun Verkefnastjórn Kolefnisspor Hringrásarhagkerfi Þróun og nýsköpun Loftslagsbreytingar +354 863 6211 bjorg@verkvist.is Um Björgu Björg er sjálfbærniverkfræðingur frá Cambridge-háskóla í Englandi og hefur víðtæka reynslu í sjálfbærniráðgjöf, verkefnastjórnun og gagnagreiningu. Áður en hún hóf störf hjá VERKVIST, vann hún sem sjálfbærniráðgjafi og verkefnastjóri í loftslagsteymi 3keel í Oxford. Þar vann hún meðal annars með alþjóðlegum fyrirtækjum að reikna og greina kolefnislosun þeirra samkvæmt Greenhouse Gas Protocol staðlinum og veitti þeim innsýn í helstu tækifæri til að draga úr losun. Í því starfi öðlaðist hún meðal annars góða reynslu í gagnagreiningu, verkefnastjórnun, uppbyggingu sterkra viðskiptatengsla við ólíka hagaðila og miðlun flókinna upplýsinga á skýran og faglegan hátt. Í meistaranámi sínu lagði Björg áherslu á sjálfbærni í byggingariðnaði og í orkugeiranum. Í verkefnum sínum lagði hún m.a. til aðgerðir til að draga úr innbyggðu kolefni (e. upfront carbon) í nýbyggingum, skoðaði hönnunarforsendur fyrir byggingareiningar sem eru hannaðar m.t.t. niðurtöku og endurnotkunar, framkvæmdi áhættugreiningu fyrir raforkuflutningskerfi Íslands og rýndi í sviðmyndir Bretlands í orkumálum m.t.t. áherslna þeirra í loftslagsmálum. Áður en hún hóf meistaranám vann hún í sjálfbærniverkefnum hjá VSÓ Ráðgjöf. Þar fékk hún innsýn í BREEAM, greindi tækifæri og hindranir við innleiðingu hringrásarhagkerfisins í íslenskum byggingariðnaði, var meðhöfundur sjálfbærniskýrslu fyrirtækisins og leiddi styrkumsóknina Hringrásarhúsið sem fékk úthlutað kr. 20 milljónum úr sjóði Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að efla hringrásarhagkerfið árið 2021. Hjá VERKVIST leiðir Björg faglega umsjón og uppbyggingu umhverfisvottana og kemur með ómetanlega reynslu og sýn inn í verkefni VERKVISTAR Starfsreynsla 2026- VERKVIST Fagleiðtogi umhverfisvottun 20203-2026 3keel, sjálfbærniráðgjafi 2020-2021 VSÓ Ráðgjöf, sérfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði 2019 VSÓ Ráðgjöf, sumarstarfsmaður á umhverfis- og skipulagssviði 2018-2019 Háskóli Íslands, aðstoðakennari námskeiða í umhverfis- og byggingarverkfræði (hlutastarf meðfram námi) Menntun 2020 2022 2019 B.Sc., Umhverfis- og byggingarverkfræði, Háskóli Íslands MPhil., Engineering for Sustainable Development, University of Cambridge International Honours Program, umhverfisverkfræði, Stanford University. Fagleg reynsla, endurmenntun & kennsla Kolefnisútreikningar og greiningar • Þróun reiknilíkana til að áætla kolefnisspor stórra alþjóðlegra fyrirtækja. • Greining niðurstaðna og ráðgjöf um framhaldsverkefni t.d. samræmingu kolefnisútreikninga við móðurfélög og ráðgjöf um losunarstuðla. • Hönnun mælaborða sem tóku saman helstu niðurstöður kolefnisútreikninga til að styðja við ákvarðanatöku fyrirtækja í loftslagsmálum. • Umsjón með vottunarferli fyrirtækja í gegnum Science Based Targets initiative (SBTi), þar sem loftslagsmarkmið þeirra voru formlega staðfest. Verkefnastjórnun Verkefnastjórnun á verkefnum tengdum kolefnisbókhaldi og loftslagsáætlanagerð fyrir alþjóðleg fyrirtæki t.d. vegna • gagnasöfnunar, hönnunar og uppbyggingar reiknilíkana til að áætla kolefnisspor, og greiningar niðurstaðna. • mótunar aðgerða fyrir loftslagsáætlanir • samræmingar kolefnisútreikninga við móðurfélög • ráðgjafar um losunarstuðla • vottunarferlis Science Based Targets initiative (SBTi). Hringrásarhagkerfi • Umsjón með styrkumsóknina Hringrásarhúsið sem fékk úthlutað kr. 20 milljónum úr sjóði Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins til að efla hringrásarhagkerfið á Íslandi. • Þróun endurnotkunaráætlana - áætlana vegna meðhöndlunar á byggingar- og niðurrifsúrgangi, og endurnýtingar byggingarefna. • Greining tækifæra og hindrana við innleiðingu hringrásarhagkerfisins í íslenskum byggingariðnaði Kennslustörf 2021 Fyrirlestur um innleiðingu hringrásarhagkerfis í íslenskum byggingariðnaði fyrir lokaársnema í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands.
- Orkuútreikningar | VERKVIST
VERKVIST leggur áherslu á ráðgjöf þar sem hönnun bygginga og samspil tæknikerfa er metin strax á fyrstu stigum. Þannig er hægt að tryggja hagkvæma byggingu með minna kolefnisfótspor en um leið bestu innivistina. Orkuútreikningar Orkunýting Mikilvægt er að huga vel að orkunýtingu bygginga strax á hönnunarstigi, hvort sem er í nýbyggingum eða við endurbætur eldri bygginga. Þannig er hægt að hámarka orkusparnað á hagkvæman máta. VERKVIST leggur áherslu á ráðgjöf þar sem hönnun bygginga og samspil tæknikerfa er metin strax á fyrstu stigum. Þannig er hægt að tryggja hagkvæma byggingu með minna kolefnisfótspor en um leið bestu innivistina. Hjá VERKVIST leggjum við mikla áherslu á að mannvirki séu hönnuð bæði sjálfbær og orkunýtin. Orkuútreikningar Við orkuútreikninga nýtum við öflug hermiforrit til orkuútreikninga og greiningar á innivist, dagsbirtu og varmavist. Með hermun framkvæmum við greiningu með dýnamískum líkönum sem taka mið af raunverulegum aðstæðum yfir heilt ár. Þannig getum við metið orkunotkun og hitajafnvægi bygginga og lagt mat á frammistöðu byggingarhjúps, loftræsikerfa og annarra tæknikerfa. Þessi greining gefur tækifæri til að velja t.d. gler, einangrun og tæknibúnað sem tryggir betri orkunýtingu, innivist og þægindi. Hermun & ráðgjöf Með greiningum getum við hjá VERKVIST: 1. Tryggt skilvirka útfærslu byggingarhjúps og tæknikerfa. Gert ítarlega orku- , dagsbirtu, varma- og innivistargreiningu á hönnunarstigi. Stutt við vottunarferli samkvæmt alþjóðlegum. umhverfisstöðlum (BREEAM, Svansvottun, Passivhús o.fl.), Lagt mat á kolefnisspor mismunandi orkugjafa og valið vistvænustu lausnirnar. 2. Ráðlagt við val á glerjum vegna sólarálags, dagsbirtu og varmavistar innandyra. Ráðlagt við val á einangrun. Ráðlagt við stærð á gluggum eða staðsetningu til að skapa góða varmavist og tryggja dagsbirtu. Alma Dagbjört Ívarsdóttir Framkvæmdastjóri Umhverfi & sjálfbærni +354 660 2164 alma@verkvist.is Einar Örn Þorvaldsson B.Sc Umhverfis- og byggingaverkfræði Umhverfi & sjálfbærni +354 899 0282 einar@verkvist.is Klara Sif Sverrisdóttir Byggingarverkfræðingur Umhverfi & sjálfbærni +354 615 4885 klara@verkvist.is
- Jóhannes Ólafsson | VERKVIST
Jóhannes Ólafsson er með B.Sc. gráðu í Efnaverkfræði frá HÍ og mastersgráðu í Sjálfbærri Orkuverkfræði frá HR með áherslu á nýtingu jarðvarma. Áður hafði hann lokið sveinsprófi í Húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Jóhannes Ólafsson Byggingatækni Sérfræðikunnátta/menntun: Orkuverkfræðingur Efnaverkfræðingur Húsasmíði +354 849 3094 johannes@verkvist.is Um Jóhannes Jóhannes Ólafsson er með bakgrunn í landbúnaði og byggingariðnaði. Hann er með háskólamenntun á sviði raunvísinda, reynslu af akademískum vinnubrögðum og að vinna út frá verkfræðilegu sjónarhorni. Jóhannes útskrifaðist með B.Sc. gráðu í Efnaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2020. Hann lauk einnig mastersgráðu í Sjálfbærri Orkuverkfræði frá HR árið 2023 með áherslu á nýtingu jarðvarma. Áður hafði hann lokið sveinsprófi í Húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Jóhannes hóf störf hjá VERKVIST í október en af fyrri störfum hefur hann öðlast reynslu af sjálbærni bókhaldi (ESG), umsóknarferli fyrir Svansvottun m.a. metangass og umhverfisstefnu fyrirtækja. Hann hefur einnig komið að ýmsum verkefnum tengdum landbúnaði fyrir sveitarfélög, gæðamálum, innleiðingu hringrásarhagkefis á höfuðborgarsvæðinu o.fl. Sérstaða Jóhannesar hjá VERKVIST verður sýnataka á menguðum jarðvegi, efnum, orkumálum og vottunum. Hann kemur hins vegar til með að starfa á fleiri sviðum tengdum umhverfi og sjálfbærni, byggingartækni og innivist. Reynsla & verkefni 2024- 2022-2024 VERKVIST: Orku- og efnaverkfræðingur Sjálfbærni & byggingatækni SORPA: Orkuverkfræðingur 2021-2022 SORPA: Sérfræðingur í gæðamálum Sýnataka á menguðum jarðvegi og byggingarefnum Vottanir (Svansvottun & BREAM) Gæðamál Sjálfbærni Innivist, rakamælingar & ástandsskoðun Námskeið Jóhannes hefur sótt ýmis námskeið, ráðstefnur og fyrirlestra er málefnið varða s.s.: - Raki og mygla í húsum 1, Iðan fræðslusetur (sept 2024) - Raki og mygla í húsum 2, Iðan fræðslusetur (okt 2024) - Sýnataka á menguðum jarðvegi, EUROFINS haldið á vegum Verkís og FUMÍS (okt 2024) - Fjármál og rekstur fyrirtækja, Opni Háskólinn (jan 2024 - feb 2024) - Ferla- og gæðastjórnun, Opni Háskólinn (sep 2022 - okt 2022)
- Sérfræðingur til leigu | VERKVIST
Umhverfissérfræðingur til leigu í þitt teymi. Við leggjum til sérfræðing í þitt teymi sem aðstoðar þig í umhverfismálum og við vistvottanir eins og Svaninn og BREEAM. Umhverfissérfræðingur til stuðnings Sérfræðingur í teymið Umhverfissérfræðingur til leigu er sérfræðingur í teyminu sem styður söluteymi og tryggir faglega upplýsingagjöf gagnvart markaðnum. Umhverfisvottanir bygginga eru orðnar lykilþáttur í flestum stærri byggingarverkefnum. Til að uppfylla kröfur vottunarkerfa á borð við BREEAM og Svansvottun þurfa byggingaraðilar að leggja fram rétt, samræmd og áreiðanleg gögn um þær byggingarvörur sem notaðar eru í verkefnum. Slík gögn koma að stórum hluta frá framleiðendum, innflytjendum og söluaðilum byggingarvara. Í þessu samhengi gegna þeir aðilar sem selja og miðla byggingarvörum lykilhlutverki. Þeir þurfa að geta svarað skýrt og faglega: hvernig vörur uppfylla viðmið vottunarkerfa hvaða forsendur liggja að baki mati hvaða gögn styðja slíkar fullyrðingar Umhverfisvottunarkerfi bygginga gera auknar kröfur til upplýsinga um hvernig byggingarvörur falla að viðmiðum og hvaða gögnum þarf að skila inn. Ósamræmdar eða ófullnægjandi upplýsingar geta haft áhrif á samskipti við viðskiptavini, framgang verkefna og þátttöku í útboðum. Með Umhverfissérfræðingi til leigu fá fyrirtæki aðgang að sérhæfðri umhverfisþekkingu sem starfar sem hluti af teyminu, án þess að uppfylla heilt stöðugildi. Þjónustan er faglegt bakland fyrir sölu- og markaðsteymi og styður fyrirtæki í samskiptum við hönnuði, verkkaupa og byggingaraðila með samræmdri og áreiðanlegri upplýsingagjöf. HAFA SAMBAND Hröð og fagleg viðbrögð Þjónustan felur í sér faglega og hagnýta aðstoð við: mat á því hvernig byggingarvörur uppfylla kröfur og viðmið vottunarkerfa á borð við BREEAM og Svansvottun greiningu á því hvaða viðmið eiga við hverju sinni skilgreiningu á þeim gögnum sem þarf að leggja fram til að sýna fram á samræmi. aðstoð við skráningu á vörum í SCDP (Supply Chain Declaration Portal) Svansins. Umhverfissérfræðingur til leigu styður söluteymi í daglegu starfi þegar fyrirspurnir berast frá viðskiptavinum. Í því felst meðal annars: yfirferð á vörum og tilheyrandi gögnum trygging þess að rétt skjöl fylgi í samskiptum s.s. EPD, tækniblöð og önnur gögn sem vottunarkerfi gera kröfu um stuðningur og svör við tæknilegum og umhverfislegum fyrirspurnum. Þjónustan stuðlar að samræmdri, faglegri og áreiðanlegri upplýsingagjöf, dregur úr áhættu rangra fullyrðinga og léttir verulega á álagi innri teyma. HAFA SAMBAND Fyrir hverja? Umhverfissérfræðingur til leigu hentar sérstaklega: framleiðendum byggingarvara innflytjendum og heildsölum byggingarvara söluaðilum byggingarvara fyrirtækjum sem þurfa reglulegan eða tímabundinn stuðning í umhverfis- og vottunarmálum Þjónustan er veitt eftir þörfum og aðlöguð að umfangi verkefna og fyrirspurna. Umhverfissérfræðingur til leigu getur verið: reglulegur bakhjarl fyrir söluteymi virkur hluti af teyminu á ákveðnu tímabili eða tímabundinn stuðningur í tengslum við nýjar vörur, breyttar kröfur eða aukið álag Fyrirtæki fá þannig innanhúss sérfræðing án ráðningar, með skýrt hlutverk á lægri og fyrirsjáanlegum kostnaði en hefðbundin ráðgjöf í tímavinnu. HEF ÁHUGA Á KYNNINGU
- Heimili | VERKVIST | Rakaskemmdir, mygla, sýnataka
Heimilsskoðun vegna rakaskemmda og myglu. Sýnataka og úttekt á rakaástandi. Ráðgjöf og eftirfylni. Áratuga reynsla og frumkvöðlar í rannsóknum á raka og myglu. Rakaskimun, rakamælingar og loftgæðamælingar. Heimili Verðskrá Þjónusta heimili Heimilisskoðun Rakaskimun og úttekt á rakaástandi. Sýnataka með DNA ryksýnum eða úr byggingarefnum. BÓKAÐU SKOÐUN Viðtal Ráðgjöf vegna rakaskemmda, hreinsunar eða mótvægisaðgerða í gegnum síma eða fjarfundarbúnað . BÓKAÐU VIÐTAL Ráðgjöf Ráðgjöf vegna innivistar, endurbóta, fasteignakaupa, efnisvals eða endurheimtunar heilsu. BÓKAÐU RÁÐGJÖF Heimilisskoðun Úttekt á rakaástandi á heimili fer þannig fram að rakaskimað er meðfram útveggjum, undir gluggum, framan við útihurðar, í votrýmum og á áhættusvæðum. Ef koma fram frávik í raka þarf að skoða þau svæði nánar, finna orsök og meta afleiðingar. Í framhaldi er gefin almenn eða sértæk ráðgjöf varðandi næstu skref og úrbætur. Viðtal Hægt er að panta viðtalstíma hjá sérfræðingum okkar varðandi rakavandamál, mótvægisaðgerðir, úrbætur og næstu skref til að bæta innivist. Einnig er hægt að fara notkun efna á heimilinu og við efnisval við endurbætur eða önnur atriði er varða fasteignakaup. Hjúkrunarfræðingur, líffræðingur eða lýðheilsufræðingur veitir ráðgjöf. Sýnataka Sýni geta verið af nokkrum gerðum. Efnissýni eru tekin úr byggingarefnum eins og gólfefnum, undirlagi, ílögn, flotefnum, múr, steypu eða timbri. Þá er tekinn kjarni eða flís úr byggingarefni sem er send á rannsóknarstofu til skoðunar undir smásjá. Þá má greina hvort mygla og undirliggjandi þræðir séu í sýni en það gefur til kynna að mygla vaxi í byggingarefninu. Sýni af yfirborði með límbandi, ætiskál eða strokpinna gefa vísbendingar um gró sem eru loftborin, en ekki endilega hvar mygluvöxtur er staðsettur. Sýni úr byggingarefnum eru ekki tekin nema hægt sé að lágmarka rask. DNA sýnataka Hægt er að taka stroksýni af uppsöfnuðu ryki en þau sýni eru send til Danmerkur í qPCR greiningu. Slík sýni eru oftast kölluð DNA sýni og geta gefið vísbendingar um hvort rakasvæði eða mygla séu falin í byggingarhlutum. Þessi sýni eru því tekin til að fá fram betri mynd af ástandi en gefa ekki endilega rétta niðurstöðu né staðsetningu vandamála nema þá mögulega í samhengi við upplýsingar sem koma fram við rakaskimun og skoðun. qPCR-greining mælir tiltekin DNA-mörk sveppa í ryksýni. Niðurstöður geta stutt byggingarmat en staðsetja ekki einar og sér skemmdir og staðfesta ekki heilnæmi húsnæðis. Loftgæðamælingar Loftgæðamælingar eru framkvæmdar þannig að síriti af tegundinni ATMO er skilinn eftir í 1-2 vikur til þess að kanna þá þætti sem hann nemur og skynjar (h iti, loftraki, svifryk (PM1, PM2,5, PM10), TVOC, formaldehýð, NOX, hávaði og lýsing). Niðurstöðurnar geta gefið vísbendingar um það sem betur má fara eða þarf að rannsaka betur. Fasteignakaup/sala Það er vandasamt að kaupa fasteign. Starfsfólk VERKVISTAR hefur reynslu og þekkingu á þeim göllum sem geta leynst í húsnæði með tilliti til eldri leka og rakaskemmda. Hægt er að panta viðtal fyrir fasteignakaup og fá ráðgjöf varðandi fasteignakaup út frá áhættuþáttum sem tengjast raka. Einnig er hægt að fá ráðgjöf varðandi mögulegar viðhaldsaðgerðir framundan. Viðhald og endurbætur Gott er að láta framkvæma rakaskimun áður en lagt er í viðhaldsframkvæmdir. Með því fást nauðsynlegar upplýsingar um rakaástand byggingar. Út frá því næst betur að forgangsraða þeim viðgerðum og endurbótum sem ráðast þarf í næstu árin. Húsfélög geta óskað eftir viðhaldsáætlun fyrir byggingu í heild eða óskað eftir því að ákveðin atriði er varða leka eða rakaskemmdir séu tekin fyrir. Kostnaður og eftirlit Eftir úttekt er hægt að óska eftir kostnaðarmati á þeim endurbótum sem lagðar eru til. Einnig er hægt að fá eftirlit með framkvæmdum, verklýsingar og ítarlega ráðgjöf varðandi viðgerðir á rakaskemmdum svæðum, bæði varðandi aðgerðir og hreinsun. Útboðsgögn Ef framundan eru framkvæmdir hjá húsfélagi er hægt að óska eftir útboðsgögnum eða verklýsingum vegna úrbóta og viðhaldsframkvæmda. Verðskrá Innifalið í heimilisskoðun er rakaskimun á áhættusvæðum, meðfram útveggjum, í votrýmum, undir gluggum og framan við hurðir. Rakamælingar fara fram með yfirborðsrakamæli þar sem er kannað hvort að rakaástand byggingarefna gefi til kynna rakaskemmdir eða myglu. Þar sem raki mælist hækkaður með viðmiðunarmælingum er hætta á að örverur eins og mygla og bakteríur hafi náð að vaxa upp í byggingarefnum. Rakaskemmdir og mygla getur verið falin og er áskorun að finna. Rakaskimun þarf að fara fram áður en ákveðið er hvort þör f er á sýnatöku eða hvernig sýni er tekið. Greining á sýnum fer fram á rannsóknarstofu og er ekki innifalið í grunngjaldi. Grunngjald miðast við fyrstu klukkustund á staðnum . Venjuleg heimilisskoðun tekur venjulega 1 klukkustund en eftir fyrsta klukkutímann bætist við tímagjald. VERÐSKRÁ Þjónusta Verð m. vsk . Heimilisskoðun, grunngjald kr. 95.000 Heimilisskoðun með skjali kr 140.000 Tímagjald kr. 26.000 Ráðgjöf/viðtal 1 klst. kr. 30.000 DNA sýni kr. 50.000 Efnissýni kr. 25.000 Akstur höfuðborgarsv. kr. 5.500 Akstur km gjald kr. 170 kr/km Innifalin er notkun eftirfarandi tækja; rakamælir, sýnatökubúnaður, ryksuga og hlífðarbúnaður. Loftgæðamælir, hitamyndavél, agnateljari og röramyndavél er ekki innifalið í verði. Tímagjald miðast við dagvinnutíma en utan dagvinnu, eftir kl 17 bætist við 45% álag á tímagjal d. Tilboð er gert fyrirfram í akstur og ferðir utan höfuðborgarsvæðisins. Önnur ráðgjöf eða þjónusta í tímavinnu: o Ítarleg ráðgjöf o Verklýsingar o Eftirlit með framkv æmdum o Kostnað armat o Útboðsgögn o Eftirfylgni
- Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir | VERKVIST
Sylgja Dögg er líffræðingur með gráðu í lýðheilsuvísindum og hefur starfað í byggingariðnaði frá árinu 2006 þar sem hún hefur aflað sér fjölbreyttrar reynslu og þekkingar við sérfræðiráðgjöf, kennslu, mælingar og rannsóknir á byggingum vegna rakavandamála, rakaflæðis, innivistar, efnisvals, heilnæmis, vistvottana og loftgæða um árabil. Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Eigandi / framkvæmdastjóri/sviðsstjóri Innivist & lýðheilsa Líffræði B.sc., Lýðheilsa MPH Líffræði og landfræði Lýðheilsa og forvarnir Byggt umhverfi Innivist og loftgæði +354 665 6244 sylgja@verkvist.is Um Sylgju Sylgja Dögg er einn af stofnendum og eigendum VERKVISTAR en hún er með B.Sc. í líffræði með landfræði sem aukafag. Hún hefur einnig lokið meistaragráðu í lýðheilsuvísindum MPH (Public/Global health) frá læknadeild HÍ . Sylgja Dögg hefur starfað í byggingariðnaði frá árinu 2006 þar sem hún hefur aflað sér fjölbreyttrar reynslu og þekkingar við sérfræðiráðgjöf, kennslu, mælingar og rannsóknir á byggingum vegna rakavandamála, rakaflæðis, innivistar, efnisvals, heilnæmis, vistvottana og loftgæða um árabil. Sylgja Dögg er stofnandi frumkvöðlafyrirtækisins „Hús og heilsa” sem stofnað var árið 2006 og var forsprakki húsaskoðanna á Íslandi með rakaöryggi og úttektir að leiðarljósi. Hún starfaði sem fagstjóri hjá EFLU verkfræðistofu á sviði bygginga frá árinu 2015-2023. Helstu verkefni hennar síðastliðin ár hafa verið við: verkefnastjórnun, þróun nýrrar þjónustu í byggingareðlisfræði, uppbyggingu innivistardeildar, uppsetningu rannsóknarstofu vegna myglugreininga í EFLU verkfræðistofu. Einnig þróun verkferla í innivist, við úttektir, rannsóknir á rakaástandi, viðbrögðum og mótvægisaðgerðum vegna loftgæða, rakaskemmda og myglu á Íslandi. Sylgja hefur einnig komið að skipulagningu fjölda viðburða og ráðstefna tengdum málefninu. Ráðstefnan Healthy buildings 2025 var í hennar umsjón fyrir hönd ISIAQ (International society of Indoor Air Quality). Hún hefur verið virkur fyrirlesari, unnið að framsetningu gagna, áhættumati, gæðastjórnun, gerð verkferla og kennslu víðs vegar fyrir fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög, einstaklinga og umhverfisveika. Megin áherslur Sylgju Daggar hjá VERKVIST eru á alla þætti sem tengjast heilnæmri innivist, rannsóknum, vísindum, fræðslu, fyrirlestrum, ráðgjöf, loftgæðum og fleira. Sylgja stýrir sviði Innivistar & lýðheilsu ásamt því að vera einn af tveimur framkvæmdastjórum VERKVISTAR. Reynsla & verkefni 2024- 2015-2023 VERKVIST Framkvæmdastjóri/eigandi EFLA fagstjóri Húss og heilsu, sérfræðingur innivist, Byggingasvið 2006-2015 Hús og heilsa, framkvæmdastjóri og eigandi 2018-2020 Rb: Rannsóknarstofnun byggingariðnaðar, Verkefnastjóri, rannsóknir á myglusækni byggingarefna Dæmi um ráðgjöf og þjónustu Innivistarráðgjafi Rakaástand og mygluskoðun Fræðsla og kynningar Byggingartækni og -eðlisfræði Loftgæði Lýðheilsa og forvarnir Verkefnastjórn Einstaklingsráðgjöf vegna innivistar Viðburðastjórnun og ráðstefnur Ráðgjöf við fasteignakaup Rannsóknarverkefni, námskeið & ráðstefnur NORDFORSK - fjarvinna í breyttu vinnuumhverfi, umhverfisáhrif og innivist. ASKUR - Loftgæði í skólabyggingum, Leiðarvísir um úttektir á rakaástandi bygginga. Rannsókn á vegum NMÍ Rb. Verkefnastjórnun Heilsueflandi vinnustaður, EFLA Verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ (við upphaf verkefnisins) 2009-2023 2011-2017 2012-2018 2012-2013 2021 2020 2020 2020 2019 2018 2018 2018 2018 2018 2018 2018 2017 2017 2017 2017 2017 2016 2016 2015 Indoor air ISIAQ (2009, 2011, 2015, 2018, 2019, 2022) Healthy buildings ISIAQ (2010, 2012, 2014, 2016, 2017, 2020, 2021, 2022, 2023) Ráðstefnur sem tengjast innivist á Íslandi (2012, 2014, 2015, 2016, 2017, 2018, 2019) Bioaerosoles (2012, 2013) CE merking - byggingarvörur Svansvottaðar byggingar Microsoft Teams, IÐAN Áhættumat í byggingariðnaði COVID, IÐAN Ajour í byggingariðnaði, IÐAN Design of moisture safe buildings, EHÍ Leiðtogaþjálfun, Opni háskólinn í Reykjavík Sex lyklar að velgengni, Hita og rakaástand í byggingarhlutum EHÍ Málþing NMÍ um vatnsskaða Málþing NMÍ um íslenska útvegginn Vistbyggðaráð: Umhverfisvænar byggingar Hita og rakaástand byggingarhluta, EHÍ Byggingargátt MVS, IÐAN Málþing Íslenska byggingavettvangsins Loftun byggingahluta, IÐAN Frágangur votrýma, IÐAN Rakaflæði í byggingum, WUFI SINTEF/ NTNU Frágangur rakavarnarlaga, SIGA, IÐAN Þök, rakaástand og mygla. IÐAN Félagsstörf og fagráð Vísindaráð mannvirkjarannsókna, HMS 2024 Fagráð Embættis Landlæknis um rakaskemmdir 2019 – Betri byggingar fagráð, NMI Rb .,Stjórnarmaður frá 2021, 2014- Rauði kross Íslands, viðbragðsteymi 2014-2017 (sjálfboðavinna) Félag lýðheilsufræðinga, stjórnarmaður frá 2018+ IceAQ samtök um loftgæði á Íslandi, formaður frá árinu 2012+ ISIAQ alþjóðasamtök um innivist aðili frá árinu 2009+ Heilsuvin í Mosfellsbæ, klasi, stjórnarformaður, 2011-2014 Heilsuvin í Mosfellsbæ, klasi, stjórnarmeðlimur, 2014+ Heilsueflandi samfélag Mosfellsbæ, verkefnastjórnun 2012+ Iðunn nemendafélag í lýðheilsuvísindum, formaður 2010-2014 Vatnsvarnarbandalagið MVS, 2013 Dómkvaddur matsmaður frá 2012+ Matsmannafélag Íslands frá 2012+ Kennsla og fyrirlestrar Háskólinn í Reykjavík Byggingartæknifræði leiðbeinandi nemanda í lokaverkefni BSc., 2019 og 2024 Háskólinn í Reykjavík Stundakennari byggingarfræði og byggingareðlisfræði 2012-2024 Háskóli Íslands Stundakennari í örverufræði II fyrir meistaranám 2017-2022 IÐAN fræðslusetur, Raki og mygla I, II og III. Hef haldið 36 námskeið á árunum 2011-2022 Tækniskólinn, gestafyrirlesari Endurmenntun Háskóla Íslands Raki og mygla í byggingum, Rakaöryggi 2014, 2015, 2021, 2022 Endurmenntun Háskóla Íslands Innivist og heilsa 2014 , 2015 Læknadagar 2012 Faglegur fyrirlestur Nýsköpunarmiðstöð Íslands, ársfundur 2019 Byggingar og heilsa Nýsköpunarmiðstöð íslands Allir vinna 2009- 2010 Bandalag háskólamanna BHM Myglusveppur; ógn við heilsu starfsfóks ráðstefna 2017 Lýðheilsa og skipulag Ráðstefna 2017 Vistbyggðaráð Innivist og loftgæði 2019 Innivist og heilsa Ráðstefna Grand hótel 2019
- Vistvottun | VERKVIST
VERKVIST veitir ráðgjöf og annast verkefnastýringu við vistvottun bygginga meðal annars fyrir Svansvottun, BREEAM-vottun eða BREEAM in use á nýbyggingum, endurbótum og í rekstri. Vistvottun Vistvottun & sjálfbærni Vistvottun bygginga er formleg staðfesting á því að bygging uppfylli ákveðin viðmið um sjálfbærni, heilnæmt inniloft, orkunýtingu og umhverfisáhrif. Vottunin byggir oft á alþjóðlegum stöðlum eða svæðisbundnum kerfum og veitir þriðja aðila mat eða upplýsingar um hvernig hönnun, framkvæmd og rekstur byggingar hefur áhrif á umhverfi, heilsu og vellíðan fólks. Vistvottun bygginga er ekki bara "grænt orðspor" heldur kerfisbundin nálgun til að byggja eða bæta húsnæði með það að markmiði að skapa heilnæm, endingargóð og umhverfisvæn rými. Hún skilar sér bæði í bættum lífsgæðum og lægri rekstarkostnaði til langtíma. Vistvottun bygginga Áhersla er lögð á vistvænar lausnir og sjálfbærar byggingar þar sem sérstaklega er hugað að heilsu og vellíðan notenda, um leið og dregið er úr neikvæðum áhrifum á umhverfið yfir líftíma bygginga. VERKVIST veitir ráðgjöf og annast verkefnastýringu við vistvottun bygginga meðal annars fyrir Svansvottun og BREEAM-vottun á nýbyggingum, endurbótum og í rekstri. Svansvottun bygginga er lykilatriði þegar kemur að því að stuðla að sjálfbærni og nýsköpun í byggingariðnaðinum á meðan samfélagið nýtur góðs af minni umhverfisáhrifum, bættri heilsu og vellíðan. Svansvottun er því mikilvæg fyrir framtíð sjálfbærrar þróunar. Endurnýting og endurvinnsla Vottunarkerfi í byggingariðnaði leggja áherslu á umhverfisvæna nálgun. Mikilvægi endurnotkunar og skilvirkrar úrgangslosunar er einnig í forgrunni til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. Vistvottun stuðlar að minni losun skaðlegra efna, dregur úr hnattrænni hlýnun og verndar heilsu bæði notenda og byggingaraðila. Með því að innleiða endurnýtingu og ábyrga meðhöndlun úrgangs frá upphafi, er stuðlað að vistvænna byggingarferli og minna umhverfisfótspori. Alma Dagbjört Ívarsdóttir Framkvæmdastjóri Umhverfi & sjálfbærni +354 660 2164 alma@verkvist.is Björg Bjarnadóttir Fagleiðtogi umhverfisvottun Umhverfi & sjálfbærni +354 863 6211 bjorg@verkvist.is Einar Örn Þorvaldsson B.Sc Umhverfis- og byggingaverkfræði Umhverfi & sjálfbærni +354 899 0282 einar@verkvist.is Helga María Adolfsd. Fagleiðtogi lífsferilsgreining Umhverfi & sjálfbærni +354 692 4815 helgamaria@verkvist.is Klara Sif Sverrisdóttir Byggingarverkfræðingur Umhverfi & sjálfbærni +354 615 4885 klara@verkvist.is
- Arnar Þór Sævarsson | VERKVIST
Arnar Þór Sævarsson hefur B.Sc. gráðu í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og sveinspróf í húsasmíði frá Tækniskólanum. Hans megin áherslur hjá VERKVIST eru á heilnæma innivist, byggingatæknifræði, byggingaeðlisfræði, ástandsskoðanir, loftgæði og margt fleira. Arnar Þór Sævarsson Fagleiðtogi Innivist & byggingartækni Sérfræðikunnátta/menntun: Byggingatæknifræðingur & húsasmiður Innivist Byggingatækni Viðhald og endurbætur Eftirlit Verkefnastjórn Rakaöryggi +354 662 3798 arnar@verkvist.is Um Arnar Arnar Þór hefur B.Sc. gráðu í byggingartæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og sveinspróf í húsasmíði frá Tækniskólanum. Arnar hefur 6 ára starfsreynslu sem húsasmiður. Arnar hefur komið að fjölmörgum verkefnum tengdum innivist, framkvæmdareftirliti, gerð kostnaðargreininga, verklýsinga og útboðsgagna. Arnar hefur séð um loftgæðamælingar og loftþéttleikaprófanir vegna BREEAM vottana. Hans megin áherslur hjá VERKVIST eru á heilnæma innivist, byggingatæknifræði, byggingaeðlisfræði, ástandsskoðanir, loftgæði og margt fleira. Reynsla & verkefni 2024- 2021-2024 VERKVIST: Innivist & byggingatækni Efla verkfræðistofa: Sérfræðingur á sviði byggingatækni og innivistar 2020-2021 Ístak: Tæknimaður 2014-2018 Húsasmiður: Ýmis fyrirtæki Ástandsmat og úttektir Innivist og loftgæði Verkefnastjórnun Umsjón og framkvæmdareftirlit Útboðsgögn og kostnaðaráætlanir Námskeið Arnar hefur sótt fjölmörg námskeið er varða raka og myglu, brunaþéttingar og námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn.






